Þessir skilmálar gilda um notkun vefsins Verktakinn Þinn. Með því að nota vefinn samþykkir þú skilmálana hér að neðan.
Verktakinn Þinn er miðlunarpallur sem tengir viðskiptavini við verktaka. Við berum ekki ábyrgð á gæðum vinnu eða samningum milli viðskiptavina og verktaka.
Bókanir eru gerðar beint milli viðskiptavinar og verktaka. Verktakinn Þinn ber ekki ábyrgð á framkvæmd verks eða greiðslum fyrir þjónustu.
Fyrirkomulag: Verktakar greiða mánaðarlega áskrift til að birtast á vefnum. Í boði eru áskriftarleiðirnar Grunnur (7.990 kr/mán), Traustur (22.990 kr/mán) og Ómissandi (samkvæmt samkomulagi). Öll verð eru með virðisaukaskatti.
Gildistími og endurnýjun: Hvert áskriftartímabil er einn mánuður frá greiðsludegi. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa í lok hvers tímabils og er greiðslukort skuldfært fyrir næsta tímabil þar til henni er sagt upp.
Uppsögn: Hægt er að segja áskrift upp hvenær sem er á stjórnborðinu undir „Fyrirtækið mitt“ eða með því að senda póst á verktakinnthinn@gmail.com. Uppsögn tekur gildi í lok yfirstandandi tímabils og helst aðgangur virkur fram að því. Enginn uppsagnarfrestur er.
Endurgreiðsla: Greidd tímabil eru ekki endurgreidd, hvorki að hluta né öllu leyti, nema ef um tvígreiðslu eða villu af hálfu Verktakinn Þinn er að ræða, eða þar sem lög kveða á um annað. Óskum um endurgreiðslu skal beina á verktakinnthinn@gmail.com innan 14 daga frá skuldfærslu.
Verðbreytingar: Breytingar á verði eru tilkynntar með minnst 30 daga fyrirvara og taka gildi við næstu endurnýjun.
Verktakinn Þinn ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun vefsins. Allar milligöngur milli notenda eru á eigin ábyrgð.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Breytingar taka gildi um leið og þær eru birtar á vefnum.